Framkvæmdasjóður aldraðra borgaði framtíðarsýn heilbrigðisráðherra 3. febrúar 2007 18:43
Heilbrigðisráðherra fékk eina og hálfa milljón úr framkvæmdasjóði aldraðra til að prenta og dreifa bæklingi um sýn ráðherrans í öldrunarmálum. Ráðherrar heilbrigðismála hafa sótt fé til óskilgreindra þróunarverkefna úr framkvæmdasjóði aldraðra á liðnum árum. Samkvæmt lögum á að nota framlög úr sjóðnum til að byggja og viðhalda stofnunum og dvalarheimilum fyrir aldraða. Þá er einnig heimilt að nota sjóðinn til annarra verkefna sem stuðla að uppbyggingu öldrunarþjónustu. Mikil brotalöm hefur verið á því að sjóðnum sé varið til framkvæmda í öldrunarþjónustu og hefur drjúgur hluti hans farið í að fjármagna rekstur. Gerð bæklingsins Ný sýn, nýjar áherslur kostaði um hálfa milljón en níu hundruð þúsund kostaði að dreifa honum. Hann fjallaði eins og nafnið gefur til kynna um sýn ráðherra á málaflokkinn. Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra segist telja að efni bæklingsins hafi átt erindi við aldraða og útgáfa hans á kostnað sjóðsins sé innan þeirra heimilda sem séu í lögum um sjóðinn. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir hins vegar siðlaust að prenta áróðursbækling á kostnað sjóðsins sem sé ætlaður í uppbyggingu dvalar- og hjúkrunarheimila og hún muni krefja ráðherrann skýringa í þinginu á mánudag.
Mest lesið Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ Innlent Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Erlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Innlent Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Innlent Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Erlent Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Erlent Fleiri fréttir Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Ósammála um hvort Heiða sé „atvinnupólitíkus“ Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Ölvaður og árásargjarn handtekinn í verslunarmiðstöð Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Algjörlega óásættanleg staða Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Þjóðaröryggisráð boðað til fundar Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Formaður Sjálfstæðisflokksins fer yfir þunga stöðu Hættu við lendingu í miðju aðflugi Taldi sig mega birta nektarmyndir af fyrrverandi en dómarinn hélt ekki Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Sjá meira