Innlent

Lagt til að loðnukvóti verði aukinn

Hafrannsóknastofnun, sem verið hefur að mæla loðnustofninn norðaustur af landinu að undanförnu, leggur til að kvótinn verði aukinn um 190 þúsund tonn og verði samtals 370 þúsund tonn. Þar af komi u.þ.b. 300 þúsund tonn í hlut íslenskra skipa.

Náist að veiða allan þann kvóta, verður vertíðin samt sú næst lélegasta í 20 ár, að síðastliðnu ári undanskildu. Útflutningsverðmætið gæti samt orðið um 12 milljarðar króna þar sem óvenju hátt verð fæst nú fyrir allar loðnuafurðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×