Flugstoðir leggja ekki niður flugvelli 31. janúar 2007 16:30
Flugstoðir ohf segja ekkert hæft í fullyrðingum Arngríms Jónssonar flugstjóra og formanns Flugmálafélags Íslands þess efnis, að Flugstoðir hafi lagt niður Ólafsfjarðarflugvöll. Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsinga- og kynningarfulltrúi Flugstoða, segir að Ólafsfjarðarflugvöllur hafi verið lagður af um síðustu aldamót í samvinnu við yfirvöld á staðnum, og þá voru Flugstoðir ohf ekki til. Arngrímur segir í grein sem hann skrifaði í blaðið Vikudag á Akureyri, að Flugstoðir hafi að undanförnu lagt niður flugvelli víða um land án þess að gefa viðkomandi sveitarstjórnum tækifæri til að taka við rekstir vallanna. Hann segir að vellirnir séu víða mikilvæg öryggistæki vegna veikinda eða slysa og að í flestu tilvikum sé viðhald þeirra einfalt og ódýrt í framkvæmd. Hjördís mótmælir þessu harðlega. "Flugvöllum á Íslandi er hvorki fækkað né fjölgað nema það sé tekið fram í samgönguáætlun sem samþykkt er af Alþingi Íslendinga," segir hún. Hjördís segir að í þjónustusamningi sem var gerður milli Samgönguráðuneytisins og Flugstoða ohf. segi að Flugstoðum beri að halda sama þjónustustigi á flugvöllum og áður var. Flugstoðir ohf séu reyndar ekki eigandi af flugvöllum á Íslandi heldur sjái um rekstur þeirra og uppbyggingu. "Flugstoðir hefur á morgun starfað í einn mánuð og hefur ekki á þeim tíma lagt niður flugvelli," segir Hjördís Hún segir flugmálayfirvöld átta sig á hlutverki sínu að halda flugvöllum opnum vegna sjúkraflugs og því hafi á síðasta ári verið settur á laggirnar vinnuhópur þar sem starfsmenn frá Heilbrigðis- og Tryggingamálaráðuneytinu, Tryggingastofnun og Flugmálastjórn fóru yfir þessi mál. Í framhaldi af þeirri vinnu skilgreindi fyrrnefnt ráðuneyti og Tryggingastofnun hvaða lendingarstaðir aðrir en áætlunarflugvellir hefðu mesta þýðingu vegna sjúkraflugs á Íslandi. Flugstoðir ákveði því ekki einhliða að leggja niður velli sem nauðsynlegir eru þjóðinni vegna sjúkraflugs.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Árni Tómas Ragnarsson er látinn Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík Innlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Innlent Fleiri fréttir Nóg að gera hjá áhöfnum björgunarskipa Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Sjá meira