Innlent

Samgöngubætur hækka fasteignaverð og lækka vöruverð

Samgöngubætur hækka fasteignaverð, fjölga störfum, lækka vöruverð og auka vöruúrval og framboð þjónustu. Þetta sýna rannsóknir sem gerðar hafa verið hérlendis og kynntar voru á ráðstefnu um samgöngumál í dag.

Á ráðstefnu samgönguráðs í dag kynnti Vífill Karlsson, dósent við Háskólann á Bifröst, rannsóknir á áhrifum samgöngubóta á byggð hérlendis. Hann segir að samgöngubætur hafi veruleg áhrif á búsetuskilyrði og búsetuþróun byggða, bæði borga, smærri bæja og dreifbýlis. Einhver skýrustu dæmin hérlendis eru jarðgöng, sem stytt hafa leiðir og aukið öryggi. Áhrif Hvalfjarðarganga höfðu þannig veruleg áhrif á Vesturlandi, þar sem fasteignaverð hækkaði mikið, atvinnutækifærum fjölgaði, atvinnuöryggi jókst, vöruverð lækkaði, vöruúrval jókst og aðgengi að opinberri þjónustu batnaði ásamt fleiru.

Og þetta eru áhrif sem munar um. Fasteignaverð á Vesturlandi hækkaði þannig beinlínis vegna Hvalfjarðarganga um 15-18%, sem talið er varlega áætlað.

Vífill segir að samgöngubætur séu forsenda þess að hægt sé að þróa byggðir í góðum tengslum við nútímasamfélag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×