Innlent

Gæslan fær sína fjórðu þyrlu

Ný þyrla Landhelgisgæslunnar, sem fengið hefur einkennisstafina TF-EIR, kom til landsins í dag. Benóný Ásgrímsson flugstjóri flaug henni frá Noregi, þaðan sem hún er leigð, og var komið við til eldsneytistöku bæði í Færeyjum og á Hornafirði. Þetta er fjórða þyrla Gæslunnar en þessi er sömu gerðar og TF-SIF. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra tók á móti áhöfn þyrlunnar á Reykjavíkurflugvelli síðdegis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×