Innlent

Hótar að leita til dómstóla ef gögn fást ekki frá Kompási

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hótar að leita til dómstóla ef forsvarsmenn fréttaskýringaþáttarins Kompáss láta henni ekki í té upplýsingar sem snúa að tveimur þáttum þar sem tálbeita var notuð til að sýna fram á aðgengi barnaníðinga að ungum fórnarlömbum. Ritstjórn Kompáss skoðar nú beiðni lögreglunnar.

Eins og fram hefur komið fréttum var Ágúst Magnússon, dæmdur barnaníðingur, gripinn á dögunum þegar hann reyndi að hitta þrettán ára stúlku í kynferðislegum tilgangi sem reyndist vera tálbeita fréttaskýringaþáttarins Kompáss. Ágúst hefur verið færður á Litla-Hraun og rannsakar lögregla nú mál hans.

Þáttargerðarmenn Kompáss hafa þegar sýnt lögreglu upptöku af því þegar Ágúst reyndi að hitta stúlkuna og þá sögðust þeir hafa undir höndum upptökur af fjórum til fimm einstaklingum í viðbót sem einnig hefðu bitið á agnið. Sýnt verður frá því í næsta þætti Kompáss á sunnudaginn kemur.

Fram kemur í greinargerð lögreglunnar vegna umfjöllunar Kompáss að hún telji að almannahagsmunir krefjist þess að upplýsingar þáttarins verði skoðaðar nánar og hefur óskað eftir því að fá þær í hendur.

Ritstjórn Kompáss skoðar nú með fréttastjóra og lögmanni fréttastofu Stöðvar 2 hvort láta eigi upplýsingarnar af hendi en beiðni lögreglunnar barst fréttastofu í dag. Almenn regla fréttastofunnar sé að afhenda ekki vinnugögn. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, sem ritar undir greinargerð lögreglu, segir hins vegar að atbeina dómstóla verði leitað ef ekki verið orðið við kröfum lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×