Innlent

Ný þyrla Gæslunnar kemur til Reykjavíkur

MYND/Friðrik Þór

Nýr þyrla Landhelgisgæslunnar, sem fengið hefur einkennisstafinu TF-EIR, lenti á Reykjavíkurflugvelli upp úr klukkan fjögur í dag. Þetta er fjórða þyrla Gæslunnar og er samskonar og TF-SIF, minni þyrla Gæslunnar. Hún er leigð frá Noregi.

Þyrlan kom til Hafnar í Hornafirði í um hádegisbil í dag en þangað voru komnir forstjóri Landhelgisgæslunnar, Georg Lárusson, ásamt nokkrum starfsmönnum Gæslunnar. Það var Benóný Ásgrímsson sem flaug þyrlunni til landsins og mun ferðin hafa gengið vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×