RÚV-frumvarpið samþykkt á Alþingi 23. janúar 2007 15:01 MYND/GVA
Frumvarp um Ríkisútvarpið var samþykkt á Alþingi laust eftir klukkan þrjú með 29 atkvæðum stjórnarliða gegn 21 atkvæði stjórnarandstöðu í kjölfar háværra umræðna um fjárhagsstöðu stofnunarinnar. Tillaga stjórnarandstöðunnar um að frumvarpinu yrði vísað frá var hins vegar fellt með 29 atkvæðum til 22 og sömuleiðist tillaga um að fresta gildistöku laganna fram yfir kosningar. Fjölmargir þingmenn tóku til máls og gerðu grein fyrir atkvæði sínu og skiptust stjórn og stjórnarandstaða þar í tvær fylkingar í afstöðu sinni til frumvarpsins. Fram kom í máli stjórnarandstæðinga að þeir teldu að staða stofnunarinnar yrði ekki sterkari með samþykkt laganna. Ætlunin væri að koma stofnuninni í hendur alráðs útvarpsstjóra sem stjórnaði í umboði ríkisstjórnar og myndi rýra kjör starfsmanna. Enn fremur væri um að ræða einkavæðingu sem væri undanfari sölu RÚV. Þá gerði frumvarpið ráð fyrir því að þeir sem aðeins hefðu fjármagnstekjur greiddu ekki nefskatt til RÚV. Stjórnarliðar sökuðu stjórnarandstæðinga um óbilgirni í sínum kröfum í tengslum við frumvarpið og um að vera ómálefnalega. Þá spáði Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra því að Ríkisútvarpið yrði aldrei selt þar sem þjóðin vildi hafa þjóðarútvarp í ríkiseigu. Ríkisútvarpið mætti ekki vera eins og hestur í hafti þegar allir viti að rekstur útvarps og sjónvarp er kapphlaup. Frumvarpið væri stofnuninni til heilla. Svo háværar voru umræðurnar á tímabili að forseti Alþingis, Sólveig Pétursdóttir, mátti slá í þingbjölluna af miklum móð til þess að fá hljóð í þingsal. Hafði hún á orði að það færi að stórsjá á bjöllunni ef hlutir færu ekki að róast á þingi. Áður en til atkvæðagreiðslunnar kom var vakin athygli á svari menntamálaráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur, Vinstri - grænum, um fjárhagsstöðu Ríkisútvarpsins. Í svarinu kemur fram að halli stofnunarinnar á fyrri helmingi síðasta árs hafi verið 420 milljónir og að uppsafnaðar skuldir fyrirtækisins væru 5,2 milljarðar. Til samanburðar var halli á rekstri RÚV tæpar 50 milljónir árið 2004 og tæpar 200 milljónir árið 2005
Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Innlent „Þurfum að huga að forvörnum“ Fréttir Fleiri fréttir Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Sjá meira