Innlent

Fáir ungar komust á legg

MYND/Hörður
Fáir ungar fuglanna á Tjörninni í Reykjavík komust á legg á síðasta ári.  Aðeins grágæsir komu upp ungum sínum affallalítið.

Á vef Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar er sagt frá því að gargönd, skúfönd, æður og kríur virðast ekki hafa komið upp neinum ungum. Fæðuskortur í tjörn og sjó og ásókn sílamáva er talin ástæða þessa. Umhverfisráð borgarinnar samþykkti í gær aðgerðir til að bæta stöðuna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×