Innlent

Beita þveröfugri aðferð við Akureyringa

Borgaryfirvöld í Reykjavík ætla að beita þveröfugri hagfræði við bæjaryfirvöld á Akureyri, til að lokka fleiri farþega upp í strætisvagna sína. Með fjölgun farþega að markmiði hafa Akureyringar fellt fargjöldin niður, en til að ná sama markmiði ætla Reykvíkingar að hækka sín fargjöld til muna.

Þessi reykvíska hagfræði stangast reyndar á við hugmyndir um jafnvægi á milli framboðs og eftirspurnar. En það er ekki nýtt að hagfræðingar borgarinnar fari ótroðnar slóðir og þarf ekki að fara nema nokkur misseri aftur í tímann til að rifja upp að þegar heitavatnsnotkun minnkaði til muna vegna náttúrulegra hlýinda greip Orkuveitan til þess að hækka gjaldskrána vegna minnkandi eftirspurnar.

Viðtökur Akureyringa við niðurfellingunni láta ekki á sér standa því 60 prósent fleiri farþegar fóru með strætó þar í þriðju viku janúarmánaðar en í sömu viku í fyrra. Þar kostaði fargjaldið fyrir fullorðinn þó ekki nema 160 krónur, áður en það var fellt niður, en kostar 280 krónur í Reykjavík eftir hækkun.

Fulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstri - grænna og Frjálslynda flokksins í umhverfisráði borgarinnar mótmæla harðlega þessari hækkun og segja hana ganga í berhögg við þá stefnu borgarinnar að efla almenningssamgöngur. Hækkunin bitni auk þess á þeim sem síst skyldi og sé tvöfalt meiri en verðbólguspá fyrir þetta ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×