Innlent

Sló samfanga sinn í höfuðið með súpudunki

MYND/Stefán
Fangi á Litla-Hrauni kærði í síðustu viku samfanga sinn fyrir líkamsárás og eignaspjöll en sá síðarnefndi sló þann fyrrnefnda í höfuðið með plastdunk sem var fullur af súpu án þess þó að hann hlyti alvarleg meiðsl. Um leið skemmdi hann fartölvu kærandans. Fram kemur í frétt frá lögreglunni í Selfossi að aðilar hafi verið yfirheyrðir um atvikið og að játning liggi fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×