Innlent

Fólk fast í lyftu í Bláfjöllum

Skárra væri að vera fastur í lyftunni í dagsbirtu. Myndin er úr safni.
Skárra væri að vera fastur í lyftunni í dagsbirtu. Myndin er úr safni. MYND/Stefán Karlsson
Björgunarsveitarfólk á höfuðborgarsvæðinu hefur verið ræst út til þess að bjarga fólki úr skíðalyftum í Bláfjöllum. Allt svæðið er rafmagnslaust, fólk er fast í lyftum og annað fólk fast í brekkunum þar sem erfiðlega gengur að skíða niður í kolniðamyrkri. Talsvert af börnum var einnig á skíðaæfingu, enda einn af fyrstu dögunum sem svæðið er opið.

Ekki er ljóst af hverju rafmagnið fór eða hversu lengi myrkvað verður í brekkunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×