Innlent

Ástæða fiskidauða súrefnisskortur

Rannsóknir erlendis frá sýna að síld getur lifað við lágt súrefnisinnihald sjávar miðað við þorskfiska.
Rannsóknir erlendis frá sýna að síld getur lifað við lágt súrefnisinnihald sjávar miðað við þorskfiska. MYND/Ljósmyndadeild
Niðurstöður rannsókna starfsmanna Hafrannsóknarstofnunar benda til þess að ástæða fiskidauða í Grundarfirði í síðustu viku hafi verið súrefnisskortur.

Nokkuð af eldisþorsk drapst í kvíum í firðinum í síðustu viku. Starfsmenn Hafrannsóknarstofnunar hafa rannsakað fiskidauðann og telja þeir að mikið magn af síld í firðinum hafi orsakað lágt súrefnisinnihald sjávar og valdið því að þorskurinn í kvínni drapst. Fyrirbrigði sem þetta er þekkt í norskum fjörðum þar sem vetursetustöðvar norsk-íslensku síldarinnar eru. Rannsóknir erlendis frá sýna að síld getur lifað við lægra súrefnisinnihald sjávar miðað við þorskfiska.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×