Innlent

Ölvun á dansleik framhaldsskólanema

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ók unglingspilti til síns heima í nótt en hann fannst rænulítill í snjóskafli í austurborginni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ók unglingspilti til síns heima í nótt en hann fannst rænulítill í snjóskafli í austurborginni. MYND/Guðmundur
Talsverð ölvun var á tveimur skóladansleikjum framhaldsskólanema í Reykjavík í gærkvöld. Lögregla segir að hringja hafi þurft í forelda og forráðamenn á þriðja tug ungmenna undir 18 ára aldri til að gera þeim að sækja börn sín sem voru drukkin.

Leysa þurfti upp eftirlitslaust unglingapartý í vesturhluta borgarinnar þar sem nokkur fjöldi ungmenna var samankominn. Þá var ölvuðum unglingspilti ekið til síns heima í nótt en hann fannst rænulítill í snjóskafli í austurborginni.

Lögreglan hafði einnig afskipti af fjórum átján ára stúlkum sem höfðu keypt áfengi á skemmtistað í borginni. Jafnframt var alvarlegum athugasemdum komið á framfæri við rekstraraðila.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×