Innlent

Samtök atvinnulífsins ósátt við ákvörðun Háskóla Íslands

Samtök atvinnulífsins beittu sér fyrir ráðningu Ágústs í stöðu rektors á Bifröst.
Samtök atvinnulífsins beittu sér fyrir ráðningu Ágústs í stöðu rektors á Bifröst. MYND/Haraldur
Samtök atvinnulífsins eru ósátt við þá ákvörðun Háskóla Íslands að synja Ágústi Einarssyni, nýráðnum rektor Háskólans á Bifröst, um launalaust leyfi í þrjú ár. Samtökin eru meðal aðstandenda Háskólans á Bifröst og tilnefna tvo af stjórnarmönnum skólans.

Í tilkynningu segjast þau hafa beitt sér fyrir ráðningu Ágústs í starfið og að synjunin sé í algjöru ósamræmi við stöðu og metnað Háskóla Íslands og hún sé í andstöðu við hagsmuni atvinnulífsins vegna uppbyggingar háskólamenntunar. Samtökin vilja að ákvörðunin verði endurskoðuð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×