Innlent

Kannað hvort Vogaperrinn tengist eldri málum

Kynferðisbrotadeild lögreglu höfuðborgarsvæðisins rannsakar málið.
Kynferðisbrotadeild lögreglu höfuðborgarsvæðisins rannsakar málið. MYND/Róbert Reynisson
Kynferðisafbrotadeild lögreglu höfuðborgarsvæðisins kannar nú hvort maður sem situr í gæsluvarðhaldi vegna áreitis við börn tengist ef til vill eldri óupplýstum málum. Þetta kom fram í 10-fréttum Ríkissjónvarpsins. Maðurinn var handtekinn á þriðjudagskvöld grunaður um að hafa áreitt fjórar barnungar stúlkur í Vogahverfinu í Reykjavík.

Þetta mun ávallt vera gert við rannsókn kynferðisafbrota en í fréttinni kom ekki fram hvort einhverjar vísbendingar gæfu til kynna að hann hefði áður áreitt börn eða framið aðra kynferðisglæpi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×