Innlent

Mælendalistinn lengist

Ögmundur Jónasson hefur talað frá 17:46, með einu hálftíma hléi. Myndin er reyndar ekki frá umræðunni í kvöld.
Ögmundur Jónasson hefur talað frá 17:46, með einu hálftíma hléi. Myndin er reyndar ekki frá umræðunni í kvöld. MYND/Gunnar V. Andrésson
Ögmundur Jónasson stendur nú í pontu Alþingis í þriðju umræðu um frumvarpið um Rúv ohf. Mælendalistinn telur nú 14 Alþingismenn, sem er tæpur fjórðungur þingmanna. Af þeim 14 sem bíða þess að taka til máls, 15 ef við teljum Ögmund með, er aðeins einn þingmaður úr ríkisstjórnarflokkunum.

Þetta lýsir glöggt ræðuhöldunum sem hafa verið í þessari þriðju umræðu. Stjórnarþingmennirnir hafa verið í miklum minnihluta, þeir sem hafa tekið til máls hafa flestir talað stutt. Þeir þingmenn sem eru í stjórnarandstöðu hafa hins vegar teygt lopann og oft lesið málsgrein eftir málsgrein upp úr leiðurum, skýrslum og skoðanakönnunum.

Stjórnarandstaðan vill tefja málið þannig að ekki náist að samþykkja það fyrir kosningar. Ef í harðbakkann slær vill hún að gildistökunni verði frestað fram yfir kosningar. Á þann hátt getur stjórnarandstaðan ógilt lögin ef hún situr hinum megin við borðið eftir næstu kosningar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×