Innlent

Úrvinda sorphirðufólk

Starfsmenn Sorphirðu Reykjavíkur eru úrvinda eftir erfiða viku þar sem snjóþyngsli hafa torveldað starf þeirra. Sorptunnur Reykvíkinga eru víða lokaðar inni bak við snjóskafla og ekki hlaupið að því að sækja þær og koma þeim í ruslabílinn.

Því mælist umhverfissvið Reykjavíkurborgar til þess að borgarbúar létti undir með starfsmönnum borgarinnar og moki frá tunnunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×