Innlent

Litháar dæmdir fyrir fíkniefnasmygl

Hæstiréttur dæmdi í dag tvo Litháa, þá Arvydas Maciulskis og Saulius Prusinskas, í fjögurra og þriggja ára fangelsi fyrir að hafa í félagi með óþekktum vitorðsmanni í Litháen reynt að smygla rúmlega 1,7 lítrum af vökva með ametamínbasa til landsins sem hægt hefði verið að nota til framleiðslu á yfir 13 kílóum af amfetamíni hér á landi.

Prusinskas var gripinn á Keflavíkurflugvelli í febrúar í fyrra með tvær vínflöskur með efnunum í. Var talið að Maciulskis og hinn óþekkti vitorðsmaður í Litháen hefðu fengið hann til að flytja efnin til landsins. Héraðsdómur hafði dæmt mennina í tveggja og hálfs árs fangelsi hvorn.

Í niðurstöðu Hæstaréttar sagði að af gögnum málsins mætti ráða að innflutningurinn hefði verið vandlega skipulagður. Segja mætti að Prusinkas hefði veitt nokkurn atbeina til þess að málið upplýstist en Maciulskis hefði hins vegar reynt að afvegaleiða rannsóknina sem mest hann mátti auk þess sem hlutur hans í málinu var meiri. Að þessu gættu og að öðru leyti með vísan til forsendna héraðsdóms var refsing Maciulskis ákveðin fjögurra ára fangelsi en Prusinskas þrjú ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×