Innlent

Kristinn H. Gunnarsson vill ekki þriðja sætið

 

Kristinn H. Gunnarsson þingmaður Framsóknarflokksins ætlar ekki að þiggja þriðja sætið í Norðvesturkjördæmi en þar hafnaði hann í forvali flokksins. Hann skýrði flokknum frá þessari ákvörðun sinni í dag. Kristinn, sem hefur bæði verið orðaður við sérframboð og Frjálslynda flokkinn, er þó ekki genginn úr Framsóknarflokknum. Hann segist þó stefna á áframhaldandi afskipti af stjórnmálum og þátttöku í alþingiskosningum. Hann ætlar að skýra frá því á hvaða vettvangi hann hyggist starfa fljótlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×