Þykjast ekki vera opinber vefsíða 17. janúar 2007 16:30 USAFIS býðst til að aðstoða fólk við að sækja um í atvinnuleyfalottói Bandaríkjanna gegn gjaldi.
Fyrirtækið USAFIS sem birti auglýsingu á Vísi segist ekki vera að svindla á fólki. Auglýsingin var hlekkur á heimasíðuna usafis.org. Þar er fólki var boðið að sækja um Græna kortið til Bandaríkjanna. Auglýsingin sem hefur verið tekinn úr birtingu hljóðaði svona: „Græna kort Bandaríkjanna. Happdrætti bandarísku ríkisstjórnarinnar, búðu og starfaðu í Bandaríkjunum." Engilbert Hafsteinsson, markaðsstjóri hjá D3 sem sér um auglýsingasölu fyrir Vísir, segir að auglýsingin hafi verið tekin úr birtingu vegna fjölda áskorana frá lesendum. „Við viljum vernda okkar notendur og tókum auglýsinguna sem vísaði á umrædda síðu úr birtingu. Við erum að kanna málið." „Auglýsingin kemur til okkar sem fyrirspurn frá birtingahúsi erlendis frá. Við höfum reyndar aldrei skipt við þetta hús áður en höfðum enga ástæðu til þess að ætla að eitthvað skrítið væri í gangi," sagði Engilbert. Ron Hawkins, ræðismaður Bandaríkjanna á Íslandi, getur ekki staðfest að um ólöglega eða ósiðlega aðgerð sé að ræða. Hann segir hins vegar að allar þær upplýsingar sem komi fram á þessari síðu komi fram á opinberum vefum sem beri .gov-endingu. Hawkins segir að til séu margar vefsíður sem vilji taka peninga fyrir að sækja um Græna kortið fyrir fólk. Hann bendi öllum sem hafi áhuga á Græna kortinu á opinbera vefi. Á vef bandaríska utanríkisráðuneytisins er hægt að fá allar upplýsingar um hvernig sækja á um Græna kortið. „Margir bjóða ýmislegt á netinu og alls kyns vefsíður eru gerðar á hverjum degi. Það er mjög erfitt að fara yfir allan þann fjölda til komast að því hvað er í lagi og hvað ekki. Þess vegna bendum við fólki á að nota vefi sem enda á .gov, " segir Ron Hawkins. Í fréttatilkynningu frá USAFIS kemur fram að fyrirtækið sé ekki að þykjast vera ríkisstjórn Bandaríkjanna. Það komi fram á öllum vefsíðum fyrirtækisins. Það var stofnað árið 2001 og hefur um 500 manns á sínum snærum. Þar segir að eins og í fjármálum og lögum séu margir sem vilji fá fagmannlega hjálp. Bandaríska utanríkisráðuneytið hafi sett strangar reglur og umsóknarferlið geti verið flókið. Fyrir litla fjárhæð hafi USAFIS hjálpað hundruð þúsunda manna með umsóknarferli sitt að Græna kortinu. Lið sérfræðinga fari yfir umsóknir og sníði þær að þörfum bandaríska utanríkisráðuneytið. Fyrirtækið segist vera með gott orðspor og telur sig vera leiðandi á sínu sviði. Verðið fyrir þjónustuna er á bilinu 29 - 49 dollarar og þeir tryggi að umsóknir skjólstæðinga sinna séu í lagi. Talsmenn fyrirtækisins segja að viðvaranir um vefsíður sem séu að svindla á fólki á séu á rökum reistar. Það sé hægt að lesa allt um þeirra fyrirtæki á vefsíðu þeirra og þeir tengja sig ekki við neinar af þeim viðvörunum sem gefnar hafi verið út. Sem dæmi um viðvörun frá viðskiptaráði Bandaríkjanna má nefna að sumar slíkar vefsíður þykjast vera opinberar eða tengjast ríkstjórninni. Á síðu USAFIS kemur skýrt fram að fyrirtækið starfar ekki á vegum bandarísku ríkisstjórnarinnar.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent Árni Tómas Ragnarsson er látinn Innlent „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Fleiri fréttir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Sjá meira