Kristinn tekur ekki sæti á lista Framsóknarflokksins 17. janúar 2007 15:47 Kristinn tilkynnti formanni kjördæmasambands Framsóknarflokksins í kjördæminu um ákvörðun sína í dag.
Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi hefur ákveðið að taka ekki sæti á lista flokksins við næstu Alþingiskosningar. Fréttavefur Bæjarins besta segir að Kristinn hafi tilkynnt formanni kjördæmasambands Framsóknarflokksins í kjördæminu um ákvörðun sína í dag. Í tilkynningu frá Kristni sem birt er á vef Bæjarins besta segir: „ Á kjörtímabilinu hef ég verið gagnrýninn á ýmislegt sem flokkurinn hefur staðið að og ég tel að hafi vikið um of frá stefnu flokksins og vilja kjósenda hans. Þar má helst nefna einkavæðingu ríkisfyrirtækja í fákeppnisumhverfi, vaxandi misskiptingu í þjóðfélaginu sem útfærsla skattalækkana á kjörtímabilinu hefur aukið og viðvarandi áhuga- og árangursleysi í byggðamálum á stórum landssvæðum eins og nýlegar upplýsingar staðfesta. Niðurstaða prófkjörsins í nóvember sl. er að meirihluta til stuðningur við þá stefnu sem rekin hefur verið undanfarin ár og möguleikar mínir til þess að hafa áhrif á hana úr 3. sæti listans verða enn minni en verið hafa til þessa. Tel ég ekki rétt að taka sæti á framboðslistanum í ljósi þess að ég mun halda ótrauður áfram að tala fyrir þeim sjónarmiðum sem fram á síðustu ár hafa verið ofan á í Framsóknarflokknum og er ágætlega lýst með kjörorðinu manngildi ofar auðgildi. Frekari ákvörðun hef ég ekki tekið en fljótlega munu framtíðaráform mín skýrast." Fram kemur á fréttavef Skessuhorns að kjörnefnd Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi komi saman í kvöld til fundar og ræði þá stöðu sem nú er komin upp eftir að Kristinn afþakkaði sætið.
Mest lesið Epstein-skjölin birt Erlent Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Innlent Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Innlent Talinn hafa komið til landsins til að stela Innlent Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Erlent Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Innlent Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Innlent Fleiri fréttir Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla „Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Götulokanir í miðborginni á Þorláksmessu og um áramót Logi kynnti aðgerðir í þágu fjölmiðla Einn handtekinn í aðgerð sérsveitar á Selfossi Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Stormur gæti skollið á landið á aðfangadag Kílómetragjaldið verður að veruleika og hvassviðri um jólin Funduðu í 320 klukkustundir og afgreiddu 37 frumvörp Telja innbrot og umferðarlagabrot mesta vandamálið Katrín orðin stjórnarformaður Sjá meira