Innlent

Margrét íhugar að bjóða sig fram til formanns í stað varaformanns

MYND/Stefán

Margrét Sverrisdóttir íhugar nú að draga framboð sitt til varaformanns Frjálslynda flokksins til baka og bjóða sig fram til formanns í staðinn. Þetta gerir hún vegna afdráttarlauss stuðnings Guðjóns Arnar Kristjánsssonar, formanns flokksins, við Magnús Þór Hafsteinsson, núverandi varaformann flokksins.

Guðjón lýsti yfir stuðningi við Magnús Þór í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 í morgun og segir Margrét á heimasíðu sinni að sú yfirlýsing hafi verið mikil vonbrigði.

„Ég taldi mig vera að rétta fram sáttahönd með framboði mínu til varaformanns. Við Guðjón höfum alltaf getað starfað vel saman og mér hefði þótt eðlilegast að hann lýsti yfir hlutleysi sínu og léti flokksfólk um að kjósa á milli okkarMagnúsar, á okkar eigin forsendum í lýðræðislegri kosningu," segir Margrét á heimasíðu sinni.

 

Guðjón Arnar hafi sagt við hana þegar hann afhenti henni uppsagnarbréf sem framkvæmdstjóri þingflokks Frjálslynda flokksins, að henni væri frjálst að gefa kost á sér í embætti flokksins á eigin verðleikum. Það hafi alltaf verið að tala um að konur eigi að komast áfram í pólitík á eigin verðleikum. Veruleikinn blasir hér grímulaus við, hún fari fram gegn kosningabandalagi enda hafi hún ástæðu til að ætla að Magnús Þór hafi óttast að mæta sér á sínum eigin verðleikum án fulltingis formanns.

„Ég frétti að sá kvittur væri í gangi niðri í þingi að stuðningsyfirlýsing Guðjóns við Magnús hefði orðið til þess að ég ætlaði nú að söðla um og bjóða mig fram til formanns. Þá ákvörðun hef ég ekki tekið ennþá," segir Margrét enn fremur.

Kosið verður í forystusveit flokksins á landsþingi 27. janúar næstkomandi




Fleiri fréttir

Sjá meira


×