Innlent

Síldarviðræður standa enn yfir

Eins og stendur eru veiðar úr stofninum stjórnlausar og langt umfram ráðleggingar fiskifræðinga.
Eins og stendur eru veiðar úr stofninum stjórnlausar og langt umfram ráðleggingar fiskifræðinga. MYND/Vilhelm

Viðræður standa enn yfir í Osló milli íslenskra og norskra stjórnvalda um veiðar á norsk-íslenska síldarstofninum. Stefán Ásmundsson, formaður íslensku samninganefndarinnar, segir engan niðurstöðu komna en meðan menn séu að ræðast við séu möguleiki á að ná saman.

Norðmenn sögðu samningnum einhliða upp í hitt í fyrra og krefjast aukinnar hlutdeildar í kvótanum, einkum á kostnað Íslendinga en aðrir sem hlut eiga að máli eru Færeyingar, Rússar og Evrópusambandið. Eins og stendur eru veiðar úr stofninum stjórnlausar og langt umfram ráðleggingar fiskifræðinga. Norðmenn vilja fá aukinn kvóta eða hlutur þeirra verði 70% í stað 57%.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×