Innlent

Tíu teknir fyrir hraðaakstur í vetrarfærðinni

Þrátt fyrir vetrarfærð virðist það ekki koma í veg fyrir hraðaakstur.
Þrátt fyrir vetrarfærð virðist það ekki koma í veg fyrir hraðaakstur. MYND/Guðmundur

Tíu ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur í vetrarfærðinni í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Langflestir mældust á yfir eitt hundrað kílómetra hraða.

Lögreglan stöðvaði einnig nokkra ökumenn sem ýmist virtu ekki stöðvunarskyldu eða óku gegn rauðu ljósi. Kona á þrítugsaldri var tekin fyrir ölvunarakstur í miðborginni í nótt.

Tuttugu og níu umferðaróhöpp voru tilkynnt á síðasta sólarhring til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðin en flest voru minniháttar. Tveir voru fluttir á slysadeild eftir tveggja bíla árekstur á Sæbraut í hádeginu í gær. Þá var bíl ekið á strætisvagn á Laugavegi en ökumaður, karlmaður á þrítugsaldri, var án ökuréttinda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×