Innlent

Vill takmarka ræðutíma alþingismanna

Forseti Alþingis vill að takmarkanir verði settar á ræðutíma alþingismanna. Sólveig Pétursdóttir segir að ótakmarkaður ræðutími þekkist almennt ekki í þjóðþingum nágrannalanda.

Málþóf með maraþonræðum er þekkt aðferð stjórnarandstæðinga til að tefja fyrir því að þingmál komi til atkvæðagreiðslu.

Aðspurð hvort langar ræður og málþóf auki virðingu þingsins segir Sólveig Pétursdóttir, forseti þingsins, að hún telji svo ekki vera. Hún hafi ekki trú á löngum ræðutíma og miklum og löngum umræðum þótt hún geri sér grein fyrir að skiptar skoðanir séu um mál og mönnum liggi oft mikið á hjarta.

Að hennar mati skapist þessi staða að hluta til vgna þess að í þingsköpum séu engar takmarkanir á umræðutíma í 2. og 3. umræðu um frumvörp. Hún hafi átt marga fundi með þingflokksformönnum þar sem farið hafi verið yfir þingsköpin og þetta sé eitt af þeim atriðum sem hún telji að þurfi að breyta. Þetta þekkist ekki á þjóðþingum nágrannaríkjanna, þar séu takmarkanir á ræðutíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×