Innlent

Varnarviðræður við Breta í dag

MYND/GVA
Íslenskir embættismenn funduðu í dag í Lundúnum með breskum embættismönnum um samstarf þjóðanna í öryggismálum í Norður-Atlantshafi. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að rætt hafi verið um sameiginlega hagsmuni og hvernig hugsanlegt sé að auka samstarf Íslands og Bretlands. Annar fundur er fyrirhugaður á Íslandi en skoða á frekar hagnýta valkosti til samstarfs.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×