Heimilislausir flýja Byrgið og lenda í hrakningum 14. janúar 2007 19:15
Forstöðumaður Gistiskýlisins, athvarfs fyrir heimilislausa karlmenn í Reykjavík, segist finna verulega fyrir vandræðum Byrgisins. Mönnum sem leita á náðir Gistiskýlisins hefur fjölgað frá því málefni Byrgisins komust í hámæli og nokkrum sinnum hefur heimilislausum mönnum verið vísað á götuna að undanförnu Skýrsla Ríkisendurskoðanda um málefni Byrgisins verður kynnt á morgun en þegar er ljóst að fjármálastjórn Byrgisins var ekki sem skyldi en Félagsmálaráðuneytið skrúfaði fyrir fjárframlög fyrir skömmu eftir tilmæli frá Ríkisendurskoðun. Og í kjölfarið fjölgar heimilislausum karlmönnum í Reykjavík. Úrræði fyrir þann hóp eru ekki á hverju strái. Pláss er fyrir 8 karlmenn í heimili á Miklubraut og Gistiskýlið í Reykjavík tekur 16 manns í gistingu. Nokkrum dögum fyrir jól undirrituðu félagsmálaráðherra og borgarstjóri samkomulag um að verja um 140 milljónum króna til heimilis fyrir 10 karlmenn. Ekki er þó ljóst hvenær af því verður. Jóhann Vísir Gunnarsson og Sævar Cielski eru fastagestir Gistiskýlisins og þeir segja þörfina á úrbætum mikla. Þeir segjast ekki hafa mikla trú á nýlegu samkomulagi milli félagsmálaráðherra og borgarstjóra og benda á að kosningar séu í nánd. Þeir vilja að yfirvöld bregðist við af alvöru og útvegi heimilislausum raunverulegar lausnir sem miði að því að gera heimilislaust fólk að raunverulegum þátttakendum í íslensku þjóðfélagi.
Mest lesið „Við getum gert það sem við viljum“ Erlent „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Innlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Kom ekki á teppið Innlent Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Innlent Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Innlent Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Innlent Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni Innlent Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Fleiri fréttir Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Sjá meira