Tugmilljóna tjón á flugvél Flugstoða 11. janúar 2007 18:24
Tugmilljóna tjón varð þegar flugvél Flugmálastjórnar, nú Flugstoða, hlekktist á í flugtaki á Reykjavíkurflugvelli í hádeginu í dag. Átta manns um borð sluppu með skrekkinn en báðir spaðar vélarinnar skemmdust sem og hjólabúnaður og skrokkur þegar hún fór út af flugbrautinni á fullri ferð og braut niður flugbrautarljós og rafmagnskassa.Flugvélin, tveggja hreyfla skrúfuþota af gerðinni Beachcraft King Air, var í flugtaksbruni til austurs eftir braut 13, austur-vestur braut Reykjavíkurflugvallar, og var að nálgast brautarmót norður-suður brautar þegar óhappið varð en þá var snjókoma á vellinum. Að sögn Þorkels Ágústssonar, forstöðumanns rannsóknarnefndar flugslysa, segir flugstjórinn að hann hafi hætt við flugtak þegar hann varð þess var að vélin lét ekki að stjórn. Af ummerkjum að dæma var flugvélin þá komin á mikla ferð því eftir að hún fór út af flugbrautinni hentist hún mörg hundruð metra eftir öryggissvæði, braut niður rafmagnskassa og flugbrautarljós, áður en hún stöðvaðist skammt frá austurenda brautarinnar. Skrúfublöð beggja hreyfla skemmdust, gat kom á skrokk og nefhjólið bognaði og áætluðu flugvirkjar að það gæti kostað nokkra tugi milljóna króna að gera við flugvélina og tveir mánuðir gætu liðið áður en vélin yrði flughæf á ný. Flugvirkjar skiptu um nefhjól áður en vélin var dregin í átt að flugskýli og þá sáu menn að annað aðalhjólið á vinstri hjólalegg var fast. Um borð í vélinni voru átta starfsmenn Flugstoða, tveir flugmenn og sex farþegar, á leið til Akureyrar í verkefni á vegum félagsins.
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira