Innlent

Útibú frá þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins opnað á Akureyri

Áætlað er að starfsemin á Akureyri geti hafist í byrjun apríl.
Áætlað er að starfsemin á Akureyri geti hafist í byrjun apríl. MYND/KK

Ákveðið hefur verið að opna útibú frá þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins á Akureyri. Gert er ráð fyrir fjórum starfsmönnum á Akureyri en þeir starfa í fjarvinnslu frá þýðingamiðstöðinni sem staðsett er í Reykjavík. Áætlað er að starfsemin á Akureyri geti hafist í byrjun apríl.

Í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu segir meðal annars: „ Álag á þýðingamiðstöðina hefur aukist mjög á síðastliðnum árum og er opnun útibúsins liður í að styrkja starfsemina svo standa megi meðal annars við skuldbindingar Íslands gagnvart EES-samningnum".




Fleiri fréttir

Sjá meira


×