Innlent

Þrjú fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar

Fólkið sem kom við sögu í fíkniefnamálum er allt á þrítugsaldri.
Fólkið sem kom við sögu í fíkniefnamálum er allt á þrítugsaldri. MYND/Guðmundur

Þrjú fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og í nótt. Lögreglan hafði síðdegis í gær afskipti af karlmanni í úthverfi borgarinnar sem grunaður er um fíkniefnamisferli.

Kona og karl voru flutt á lögreglustöð eftir að fíkniefni fundust í bíl þeirra eftir miðnætti. Lögreglan fór síðan að húsi í borginni í nótt og handtók þar tvo karlmenn og eina konu en í íbúð þeirra voru ætluð fíkniefni. Fólkið sem kom við sögu í fíkniefnamálum er allt á þrítugsaldri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×