Ásókn í byggingarland bitnar á græna treflinum 10. janúar 2007 18:44
Skógræktarmenn hafa áhyggjur af ásókn Reykjavíkurborgar og nágrannasveitarfélaga í að taka skógræktarlönd höfuðborgarsvæðisins undir byggingarland. Þeir óttast að græni trefilinn svokallaði verði götóttur og hafa tekið upp viðræður við sveitarfélögin um að hann njóti friðhelgi. Hvarvetna í útjaðri byggðarinnar má nú sjá trjágróður vaxa upp . Bara á síðustu fimmtán árum er áætlað að fimm til sjö milljónir trjáa hafa verið gróðursettar í nágrenni Reykjavíkur. Skógræktarfélögin á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við sveitarfélögin hafa markvisst unnið að því allt frá árinu 1990 að klæða landið umhverfis byggðina skógi og hefur verkefnið verið nefnt Græni trefillinn. Stórt svæði var tekið frá og síðan byrjað að gróðursetja. Skógræktarmenn dreymir um að há tré eins og nú hafa vaxið upp í Heiðmörk myndi trefillinn umhverfis byggðina. Hætt er við því að trefilinn verði götóttur, miðað við ásókn í nýtt byggingarland. Þannig áformar Reykjavíkurborg nú að taka svæði á Hólmsheiði vestan Geitháls undir atvinnulóðir en þar er trjáagróður þegar orðinn áberandi. Í Úlfarsfellslandi eru framkvæmdir þegar hafnar við ný íbúðahverfi en þetta land hafði áður verið skilgreint sem hluti af græna treflinum. Framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands, Brynjólfur Jónsson, segir að nær öll sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins séu nú að sækja inn í græna treflinn til að fá byggingarland. Af því hafi skógræktarmenn verulegar áhyggjur og menn þurfi að taka sig verulegu taki til að breyta þessu þannig að öll útivist njóti góðs af í framtíðinni. Að ósk skógræktarmanna eru viðræður hafnar við Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um að verja trefilinn sem Brynjólfur telur mikilvægan fyrir lýðheilsu. Hann þurfi að njóta friðhelgi þannig að útivistin í framtíðinni verði í fyrirrúmi og þurfi ekki að gjalda þess að menn sjái ekki nógu langt fram í tímann. Brynjólfur segist þó vel geta séð byggð að hluta innan græna trefilsins en bendir um leið á að menn geti unnið ný ræktarlönd og stækkað trefillinn upp á Mosfellsheiði, upp á Sandskeið og langt upp fyrir Hafnarfjörð.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira