Peningamálastefnan bítur áfram, segir Seðlabankinn 10. janúar 2007 18:30
Gengi krónunnar féll um tæp tvö prósent í dag vegna sterks orðróms um að Kaupþing hyggist færa uppgjör sitt yfir í evru. Kaupþingsmenn neita að tjá sig. Ingimundur Friðriksson seðlabankastjóri segir að peningamálastefnan muni hafa bit áfram, jafnvel þótt einhverjir viðskiptabankanna kjósi að gera reikninga sína upp í erlendum gjaldmiðlum.Augu manna beinast nú að rá ðamönnum Kaupþings, stærsta banka landsins. Sjálfir neita þeir að tjá sig um áform sín en þeir sem til þekkja telja það aðeins spurningu um tíma hvenær bankinn stígur það skref að færa uppgjör sitt yfir í evrur. Heimildarmenn hallast jafnvel að því að það verði tilkynnt í lok þessa mánaðar, um leið og ársuppgjör bankans verður birt.Greiningardeild Landsbankans vakti athygli í gær á gríðarlegri gjaldeyrissöfnun bankanna á undanförnum vikum, einkum Kaupþings, og taldi erfitt að sjá annan tilgang en þann að einn eða fleiri bankar væru í alvöru að undirbúa að yfirgefa krónuna sem uppgjörsmynt.Seðlabankamenn telja þessa ályktun ekki sjálfgefna. Ingimundur Friðriksson segir að eðlilegar skýringar, tengdar áhættustýringu, geti legið að baki því að bankarnir byggi upp gjaldeyrisstöðu. Hann minnir á að vegna þess hve bankarnir séu orðnir stórir verði allar fjárhæðir mjög stórar, eðli málsins samkvæmt.Spurður um hvaða afleiðingar það hefði ef einn eða fleiri viðskiptabankar tækju ákvörðun um að færa bókhald sitt í evrum, segir Ingimundur að það myndi ekki hafa nein sérstök áhrif í Seðlabankanum. Bankinn eigi sín viðskipti við lánastofnanir í krónum og á því verði engin breyting. Krónan yrði áfram megingjaldmiðilinn í viðskiptum bankanna. Peningamálastefna Seðlabankans muni því hafa bit áfram, jafnvel þótt einhverjir bankar kjósi að gera upp reikninga sína í erlendum gjaldmiðli, segir Ingimundur.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði Sjá meira