Innlent

Tengivagn valt á Kísilveginum í Reykjahverfi

Tengivagn flutningabíls sem var á leið frá Húsavík til Vopnafjarðar með steypustyrktarjárn valt á svokölluðum Kísilvegi í Reykjahverfi til móts við bæinn Einarsstaði laust eftir klukkan tíu í morgun.

Að sögn lögreglu á Húsavík fór vagninn skyndilega að rása á veginum og reyndi bílstjóri flutningabílsins þá að halda honum inni á veginum en hann endaði utan vegar á hvolfi. Mikil hálka var á veginum að sögn lögreglu en bíllinn vel búinn og vagninn á negldum dekkjum. Steypustyrktarjárnið, sem var í mottum á vagninum, mun hafa skemmst eitthvað en ekki liggur fyrir hvort bíllinn eða vagninn hafi skemmst við óhappið. Ökumann bifreiðarinnar sakaði ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×