Flytur skráningu togara frá Akureyri til Reykjavíkur 10. janúar 2007 11:45
Forstjóri útgerðarfélagsins Brims, áður ÚA, er búinn að fá nóg af fjandskap Sjómannafélags Eyjafjarðar og hefur flutt skráningu togara félagsins frá Akureyri til Reykjavíkur. Formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar segir hann í leit að blóraböggli og vísar ásökunum á bug. Þegar Guðmundur Kristjánsson útgerðarmaður eignaðist Útgerðarfélag Akureyringa og skírði fyrirtækið Brim óttuðust margir Akureyringar að félaginu yrði skipt upp og það flutt úr bænum. Nú hefur Brim ákveðið að fjórir Togarar Brims skipti um heimahöfn. Árbakur og Sólbakur hafa þegar fengið einkennisstafnina RE í stað EA og hinir tveir, Kaldbakur og Harðbakur fá ný umdæmisnúmer innan skamms. Róstur hafa verið milli Sjómannafélags Eyjafjarðar og Brims undanfarið og segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ástæðuna fyrir breytingunum þá að enginn samstarfsvilji hafi verið hjá Sjómannafélagi Eyjafjarðar að starfa með Brimi. Guðmundur segir að síbreytileg félög lík og Brim þufi á því að halda að sjómannafélög veiti áhöfnum sveigjanleika en svo sé ekki. Sem dæmi nefnir hann að félagið hafi ítrekað sent útgerðinni kærur fyrir að fara örlítið fyrr út en hvíldarákvæði félagsins kváðu á um. Hann segir jafnframt að frá upphafi hafi útgerðin þurft sitja undir endalausum ásökunum frá formanni Sjómannafélagsins, Konráð Alfreðssyni um að útgerðarfélagið sé á leið með kvótann burt. Hins vegar þýði breytingar á heimahöfnum ekki að félagið sé að flytja burt frá Akureyri. Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, vísar ásökunum harðlega á bug og segir Guðmund í leit að blóraböggli.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Sjá meira