Bætur skertar eða felldar niður að óbreyttu 8. janúar 2007 18:39
Lífeyrisbætur ríflega 2000 öryrkja eiga að falla niður eða lækka, að óbreyttu, um mánaðarmótin. Lífeyrissjóðir frestuðu þessum aðgerðum í október en sá frestur rennur út fyrsta febrúar. Í desember var því beint til fulltrúa fjórtán lífeyrissjóða, í stjórn Greiðslustofu lífeyrissjóðanna, að fresta skerðingum fram til sumarsins en niðurstaða liggur enn ekki fyrir. Öryrkjabandalagið telur hins vegar að félagsmenn þess þurfi ekkert að óttast. Tekjukönnun Greiðslustofu Lífeyrissjóðanna leiddi í ljós að tólf hundruð lífeyrisþegar voru það vel staddir að mati sjóðanna að réttlætanlegt væri að fella alveg niður greiðslur til þeirra og lækka bætur ellefuhundruð annarra. Það mat byggði sjóðurinn á athugun á tekjum öryrkja í þrjú ár fyrir örorku en þær tekjur eru síðan framreiknaðar samkvæmt neysluvísitölu til dagsins í dag. Ekki þótti rétt ef í ljós kom að öryrkjar hefðu hærri tekjur eftir að hafa verið úrskurðað á örorku en áður en veikindin knúðu dyra. Ákvörðun um að fella niður eða skerða bætur hefur hinsvegar verið frestað vegna andstöðu, nú síðast í október, enda hefur verið á það bent að ekki sé hægt að miða við þrjú ár fyrir öroku því það sé einmitt tíminn þar sem margir hafi stopular tekjur vegna veikinda. Þá sé eðlilegra að miða við launavísitölu en neysluvísitölu en þar getur munað allt að sjötíu prósentum. Matthildur Hermannsdóttir framkvæmdastjóri Greiðslustofu Lífeyrissjóðanna segir að hundrað og sextíu þeirra sem hafi óskað eftir frekari athugun hafi fengið mál sitt tekið upp á því með hliðsjón af því að miða við lengri tíma fyrir örorku eða allt að átta ár. Það sé hinsvegar ekki hægt að miða við annað en neysluvísitölu þar sem samþykktir sjóðanna geri ráð fyrir því. Hún segir að skerðingarnar eiga að taka gildi fyrsta febrúar en stjórnir sjóðanna séu að fjalla um málið. Öryrkjabandalagið telur ekkert að óttast enda sé vilji innan sjóðanna til að breyta þessu. Matthildur Hermannsdóttir segir hinsvegar að enginn sjóður hafi enn tilkynnt um að hann ætli að falla frá þessum skerðingum. Ákvörðun allra fjórtán lífeyrissjóðanna muni væntanlega liggja fyrir upp úr tuttugasta janúar eða fyrr.
Mest lesið Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Innlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Innlent Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Innlent Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Erlent Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Innlent Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Innlent „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ Innlent Fleiri fréttir „Það er orrustan um Ísland“ „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Ávarp forsætisráðherra og kjarnorkukafbátur við Grundartanga Minnihlutinn hafi lagt fram eigið veiðigjaldamál: „Þetta er skrumskæling á lýðræðinu“ Spyr hvort draga eigi valdhafa undir húsvegg og skjóta Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli í Leirá Syðri og Skálm enn í gangi Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Borgarbúar frekar hlynntir kílómetragjaldi en landsbyggðin Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Sjá meira