Dómaralaust í knattspyrnunni? 7. janúar 2007 18:48
Knattspyrnudómarar í efstu deildum hér á landi eru allir samningslausir og saka KSÍ um áhugaleysi við endurnýjun samninga. Samningar dómaranna runnu út nú um áramótin. Á fjórða tug dómara funduðu í síðustu viku um sín kjaramál og samkvæmt heimildum íþróttadeildar Stöðvar 2 hafa dómarar fengið sig fullsadda og kvarta undan slæmum kjörum. Þeir eru sammála um að kjör þeirra þurfi að bæta all verulega til þess að þeir endurnýi saminga sína við KSÍ. Hljóðið er þungt í þeim dómurum sem íþróttadeildin hefur rætt við nú um helgina en þeir saka KSÍ um áhugaleysi á að leysa málið. Nokkrir reyndir dómarar íhuga jafnvel alvarlega að hætta dómgæslu alfarið vegna þeirrar stöðu sem upp er komin. Magnús Þórisson, formaður félags deildardómara, staðfesti í dag að á fundinum hafi dómarar samþykkt einróma að dæma ekki samningslausir. Náist samningar ekki á næstu dögum má því búast við að fresta þurfi Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu sem fyrirhugað er að hefjist 20. janúar og keppni í deildarbikar sem á að hefjast í febrúar. Geir Þorsteinsson framkvæmdastjóri KSÍ sá sér ekki fært um að veita viðtal vegna málsins í dag en vildi láta hafa eftir sér að dómarar hefðu farið fram á umtalsverða hækkun á sínum launum sem knattspyrnusambandið væri ekki reiðubúið að verða við. Hins vegar sagði Geir að til stæði að hitta dómarana aftur að máli nú í vikunni. Dómari fékk á síðasta tímabili 7.770 krónur í laun fyrir að dæma leik í Landsbankadeild karla. Við þá upphæð bætast 4000 krónur í dagpeninga vegna undirbúnings, grunntaxtinn í akstursgreiðslur er 1900 krónur innanbæjar auk matarpeninga samkvæmt taxta BSRB. Þá eru dómarar einnig ósáttir við þann aðgang sem þeir hafa að þjálfurum til að halda sér í formi. Birkir Sveinsson mótastjóri KSÍ sagði í samtali við íþróttadeild í dag, að auka ætti við aðgang dómara að þjálfurum og muni þeir hafa aðgang að slíkum tvisvar sinnum í viku. Eins og staðan er í dag er KSÍ því dómaralaust í efstu deildum þar til samningar nást og virðist vera langt í land með að af því verði.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Íslenski boltinn „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Handbolti Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn Íslenski boltinn „Ég má ekki segja leyndarmál“ Körfubolti Dagskráin í dag: Ensk stórlið, Stólar í Garðabæ og Besta deild kvenna Sport „Einvígið fer ekki á einum manni“ Handbolti Ellefu mörk í Mosfellsbænum Íslenski boltinn Jasmín Erla: „Mér fannst við bara helvíti góðar“ Fótbolti Þjálfari Patriots í leynilegu ástarsambandi með blaðamanni í mörg ár Sport ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Handbolti Fleiri fréttir „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Ellefu mörk í Mosfellsbænum Uppgjör: Víkingur R. - Stjarnan 2-1 | Draumabyrjun Víkings Flest mörk í 67 ár Uppgjörið : Breiðablik - Þróttur R. 2-0 | Íslandsmeistararnir reyndust of stór biti Unglingalandsliðsmaður frá Bodö/Glimt til ÍBV Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn „Ef hann er ekki með þá fer allt til fjandans“ Besta-spá kvenna 2026: Baráttan um þann stóra Hávær öskur þjálfaranna heyrðust vel: „Þú sérð það sjálfur!“ Sló met Eiðs Smára Öll mörkin í Bestu: Hetjustund Óskars, Valsarar í stuði og tvö draumamörk „Eigum að ganga gjörsamlega frá þeim“ „Fólk má hafa sínar skoðanir“ „Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ „Geðveikt að fá fulla Þórsstúku á nýjum velli“ Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Valsmenn gengu frá FH-ingum í fyrri Þór Ak. - Fram 1-0 | Aron Birkir hélt markinu hreinu í vígsluleiknum Aron pirraður: „Algjör óþarfi“ „Tölum saman eftir sex mánuði“ „Við litum út eins og þriðji flokkur“ ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Mark ársins í Bestu deildinni komið? Besta-spá kvenna 2026: Sjónarmunur á sterkum liðum ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans „Ég er ekkert órólegur“ „Það er eiginlega óskiljanlegt“ Keflavík 0-0 Breiðablik | Litlaust í fyrsta grasleiknum Markaskorari sem svífur framhjá leikmönnum Sjá meira