Innlent

Þrennt í gæsluvarðhaldi vegna ýmissa brota

Höfuðstöðvar lögreglunnar á Akureyri.
Höfuðstöðvar lögreglunnar á Akureyri. MYND/KK

Héraðsdómur Norðurlands eystra úrskurðaði í dag þrjú ungmenni í gæsluvarðhald til föstudagsins 2. febrúar en þau voru handtekin á Akureyri í gær ásamt tveimur öðrum grunuðum um bílþjófnaði, innbrot og fjársvik með greiðslukortum. Máli tveggja ungmennanna er lokið og voru þau látin laus á hádegi í dag.

Rannsókn í málum þeirra þriggja sem úrskurðuð voru í gæsluvarðhald heldur áfram en þáttur þeirra er talinn mun umfangsmeiri, eins og segir í tilkynningu lögreglunnar á Akureyri. Talið er að ungmennin tengist öll og hafa flest þeirra langan afbrotaferil að baki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×