Innlent

Þungatakmarkanir og frost töfðu framkvæmdir á Eyrarbakka

Framkvæmda- og veitusvið og Fjölskyldumiðstöð Árborgar kenna þungatakmörkunum á vegum og frosti í jörðu um að ekki hafi verið hægt að ljúka framkvæmdum á skólalóð barnaskólans á Eyrarbakka í tæka tíð. Eins og greint var frá í gær sendu kennarar nemendur í 6.-10. bekk heim úr skólanum í gærmorgun til þess að mótmæla seinagangi við verkið.

Í yfirlýsingu frá framkvæmda- og veitusviði og Fjölskyldumiðstöð Árborgar kemur fram að mikil íbúafjölgun hafi verið í Árborg á undanförnum árum með tilheyrandi uppbyggingu á skólamannvirkjum.

Hafi meðal annars verið settar upp tvær útistofur á Eyrarbakka og hafi byggingu þeirra lokið um miðjan desember.

Þegar það hafi átt að flytja þau á vettvang hafi verið þungatakmarkanir á veginum milli Selfoss og Eyrarbakka og þeim ekki aflétt fyrr en 8. janúar. Því hafi allar áætlanir farið úr skorðum og ekki tekist að ljúka vinnu við uppsetningu þeirra og frágangs í jólaleyfi nemenda eins og til stóð. Í kjölfarið hafi hins vegar tekið við frost og snjór sem hafi gert jarðvegsvinnu erfiða og því ekki hægt að ganga endanlega frá plani fyrir framan útistofur fyrr en í lok síðustu viku.

Segir enn fremur í tilkynningu þessara stofnana Árborgar að því miður hafi þurft að vinna að endurbótum á eldra húsnæði á skólatíma að hluta til en það hafi skapað nokkur óþægindi fyrir starfsfólk og nemendur. Starfsmenn sveitarfélagsins hafi kappkostað að vinna í nánu samstarfi við stjórnendur stofnunarinnar í tengslum við framkvæmdirnar og reynt að hraða framkvæmdum eins og kostur hafi verið miðað við aðstæður.

Framkvæmdum við útistofur hafi að mestu verið lokið síðastliðinn laugardag og aðeins hafi verið eftir lítils háttar frágangur í kringum húsin og tengivinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×