Innlent

Vilja að 4.500 manna íbúðabyggð rísi við Ánanaust

Tillaga um að 4.500 manna íbúðabyggð rísi á 25 hektara landfyllingu við Ánanaust liggur nú fyrir. Þróunarfélagið Þyrping hf. vill standa að framkvæmdunum og vonast til að geta hafið gerð landfyllingarinnar innan tveggja ára.

Áætlað er að nýja hverfið rísi á landfyllingu innan við og í kringum Hólma, sker sem nú glittir í skammt undan landi. Gert er ráð fyrir fjölbreyttum gerðum íbúða, fjölbýlis- og einbýlishúsum og svæði verður frátekið fyrir skóla, íþróttaaðstöðu og sundlaug. Þeir sem til þekkja vita að það getur hvesst allhressilega í Örfirisey, en talið er að með réttu skipulagi verði hægt að tryggja sem best veðurskilyrði og útsýni.

Tillagan gerir ráð fyrir að myndað verði sjávarlón með flóðgáttum sem halda vatnsborði stöðugu svo ekki gæti flóðs og fjöru. Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi, sem fer fyrir vinnuhópi um byggð í Örfirisey, sagði í samtali við fréttastofu að borgarstjórnarmeirihlutinn fagni öllum tillögum um uppbyggingu á svæðinu en áform um þróun íbúðarbyggðar í og við Örfirisey er vissulega á dagskrá hjá núverandi borgarmeirihluta.

Í dag var tillagan kynnt fyrir stjórn Faxaflóahafna, sem fer með umsjón hafnarsvæðisins, en hún fer svo í hefðbundið ferli innan borgarkerfisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×