Högnuðust um 650 milljónir á dag 30. janúar 2007 12:02
Stóru bankarnir þrír högnuðust um 650 milljónir króna hvern einasta virkan dag í fyrra sem nægir til að kaupa upp allt íbúðarhúsnæði á Akureyri á einu bretti. Hluthafarnir fá um þrjátíu milljarða í arð af hlutafé sínu í bönkunum inn á reikninga sína í mars. Kaupþing banki græddi um 85 milljarða, 26 milljörðum meira en árið áður. Glitnir græddi rúma 38 milljarða, 19 milljörðum meira en árið áður, og Landsbankinn græddi 40 milljarða, 60 prósentum meira en árið áður. Hagnaður bankanna þriggja nemur því um 164 milljörðum króna í fyrra og var það metafkoma hjá öllum. Til samanburðar má geta þess að heildarkostnaður við stærstu framkvæmd Íslandssögunnar, Kárahnúkavirkjun, er tæpir hundrað milljarðar, eða sem svarar til gróða bankanna á aðeins átta til níu mánuðum. Ársgróðinn færi líka langt með að endurnýja fiskiskipaflotann eða til að byggja um 5.500 nýjar fjögurra herbergja íbúðir á 30 milljónir stykkið. Það er hátt upp í íbúðafjöldann á Akureyri. Eignir bankanna aukast líka hratt og nema nú 28 til 29 milljónum á hvert mannsbarn í landinu. Kaupþing banki er langstærsti bankinn og stærsta fyrirtæki landsins. Markaðsvirði hans er álíka og Landsbankans og Glitnis til samans. Allar þessar tölur eiga svo eftir að hækka þegar Straumur Burðarás og Sparisjóðirnir birta sínar hagnaðartölur á næstunni.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Sjá meira