Þenslan kostar fjölskyldur 21 þúsund á mánuði 30. janúar 2007 14:30 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir greðislubyrði heimilanna vaxa um 21,7 milljarð króna vegna verðbólgu og vaxta MYND/Stefán
Tekist var á um efnahagsmálin í landinu í utandagskrárumræðu á Alþingi og ríkisstjórnin sögð bera ábyrgð á auknum skuldum heimilanna og hærri vöxtum með efnahagsstjórn sinni. Stjórnarandstaðan var hins vegar sökuð um hræðsluáróður. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, var málshefjandi í utandagskrárumræðu á Alþingi og benti að á sama tíma og tilkynnt hefði verið um gríðarlegan hagnað bankanna hefði vaxtamunur bankanna aldrei verið meiri. Benti hún á að skuldir heimilanna hefðu aukist um 1000 milljarða í tíð núverandi ríkisstjórnar og að í árslok 2006 hafi heimilin í landinu skuldað 44 milljörðum meira en í byrjun árs 2006 vegna verðbólgunnar sem verið hefði vegna þenslunnar í landinu. Þetta væru skuldir sem legðust á höfuðstól lána. Benti Ingibjörg enn fremur á að Seðlabankinn krefðist þess að bankarnir hækkuðu vexti sína til þess að draga úr þenslu í samfélaginu en slíkt yki greiðslubyrði heimilanna meðal annars vegna hækkandi vaxta af yfirdrætti. Á árinu 2007 myndi greiðslubyrði heimilanna aukast um 21,7 milljarða sem þýddi um 250 þúsund meira í afborgunum og vexti, um 21 þúsund krónur á mánuði. Þetta væri herkostnaður óábyrgrar efnahagsstefnu en ekki augnabliksástand eins og Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins og viðskiptaráðherra, hefði sagt. Spurði Ingibjörg Sólrún forsætisráðherra hvað ríkistjórnin ætlaði að gera til þess að takast á við aukna greiðslubyrði heimilanna vegna verðbólgu og hærri vaxta. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði það álit manna að íslenskst efnahagslíf væri níðsterkt og fyrir því væru þrjár ástæður. Efnahagslífið væri sveigjanlegt og gæti lagað sig að breyttum aðstæðum fljótt, staða ríkissjóðss væri sterk þar sem skuldir hans hefðu minnkað hröðum skrefum og þá byggju Íslendingar við efnað lífeyrissjóðakerfi. Geir sagði enn fremur að tölur bankanna um hagnað á síðasta ári væru ánægjulegar og að þær myndu skila sér í skattgreiðslum til ríkisins. Hagnaður þeirra væri vitnisburður um gott efnahagslíf hér á landi. Þá sagði Geir að fjárfestingar í virkjunum og áliðnaði hefðu leitt til ákveðinnar spennu í kerfinu en að nú værum við komin fyrir vind í kerfinu og rólegri tímar fram undan. Gert væri ráð fyrir að verðbólgumarkmið Seðlabankans næðust um mitt þetta ár. Spurði hann stjórnarandstöðuna hvort það hefðu verið mistök að lækka skatta á fólk og bæta kjör aldraðara, lækka skatta á matvæli og sömuleiðis eignaskatt ásamt því að hækka barnabætur um 60 prósent á árunum 2006 og 2007 Þuríður Backman, þingkona Vinstri - grænna - sagði ráðherra flytja sömur ræður og áður. Vissulega hefði staða ríkissjóðs batnað en einnig yrði að horfa til skulda fyrirtækja og heimilanna. Rót vandans væri hins vegar sú að ekki myndi slokkna á þensluástandinu ef vætingar væru í hagkerfinu um áframhaldandi stóriðju eins og útlit væri fyrir. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra sagði ríkisstjórnina hafa sagt í upphafi kjörtímabils að þensla yrði á því en hún hefði aukist vegna innkomu bankanna á íbúðalánamarkað. Sagði hann krónuna hafa skilað sínu og að ekki mætti láta undan hrekjast í málefnum hennar. Tók hann enn fremur undir orð forsætisráðherra um að stór skref hefðu verið stigin í velferðarmálum og lækkun matarskatta á kjörtímabilinu.
Mest lesið Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Innlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Innlent „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ Innlent Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Erlent Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Innlent Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Innlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Fleiri fréttir Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Ósammála um hvort Heiða sé „atvinnupólitíkus“ Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Ölvaður og árásargjarn handtekinn í verslunarmiðstöð Sjá meira