Tiger Woods fjölgar mannkyninu 20. júní 2007 07:00 Tiger og Elin eignuðust stúlkubarn sem hefur verið gefið nafnið Sam Alexis Woods.
Síðustu misseri hafa verið erfið fyrir Tiger Woods. Hann missti pabba sinn, Earl Woods, á síðasta ári en þeir voru mjög nánir vinir. Þrátt fyrir tap á US-Open um helgina gafst Woods tækifæri til að fagna sínum stærsta sigri á mánudeginum. Tiger og eiginkona hans, hin sænska Elin Woods, eignuðust dótturina Sam Alexis Woods snemma á mánudagsmorgun en frá þessu er greint á heimasíðu kylfingsins. Tiger, sem stóð í ströngu um helgina þegar hann gerði atlögu að titlinum á Opna bandaríska meistaramótinu, sagði á heimasíðunni að þetta væri mjög sérstök stund fyrir hann og Elin og þau gætu ekki beðið eftir því að takast á við foreldrahlutverkið. „Við setjum síðan inn myndir af henni á næstu mánuðum,“ skrifaði Tiger. Úlfar Jónsson lýsti lokadeginum á Opna bandaríska en þar bar argentíski kylfingurinn Angel Cabrera sigur úr býtum. Tiger gerði reyndar harða atlögu að Cabrera og hefði getað tryggt sér sæti í bráðabana með því að ná fugli á lokaholunni. Úlfar telur hins vegar nokkuð víst í ljósi fæðingarinnar að Cabrera hefði engu að síður unnið. Tiger hefði nefnilega afboðað sig en á mótinu eru spilaðar átján holur í bráðabana daginn eftir. „Þetta er svona svipað og hjá Phil Michelson árið 1999. Þá átti konan hans von á sér og hann spilaði með símboða allt mótið. Hann hafði þá sagst ætla að hætta um leið og kallið kæmi, sama hver staðan hefði verið,“ útskýrir Úlfar. Tiger lýsti því nýverið yfir að hann myndi ekki taka þátt í Opna breska mótinu ef það skaraðist á við fæðingu erfingjans. En golfáhugamenn ættu að geta tekið gleði sína því nú eru allar líkur á því að Woods verði meðal þátttakenda. „Hann hefur áður sagt að hann ætti eftir að taka þátt í mörgum mótum og vinna marga sigra. En barnið, það fæddist aðeins einu sinni,“ segir Úlfar.
Mest lesið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Lífið Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Lífið Of Monsters and Men með stórtónleika á Íslandi Tónlist Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Lífið Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Lífið Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Lífið Ásgeir heldur stórtónleika í Hörpu í ágúst Tónlist Fleiri fréttir Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Sjá meira