Kom Ladda í opna skjöldu 29. júní 2007 08:30 Björgvin kom Ladda í opna skjöldu í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi.
Björgvin Halldórsson afhenti vini sínum til margra ára, Ladda, tvær gullplötur á lokasýningu hans, Laddi 6-tugur, í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Björgvin kom Ladda í opna skjöldu með uppátækinu í lok sýningarinnar, sem hefur aftur göngu sína í haust. „Við erum gamlir og góðir vinir og höfum unnið mikið saman. Sena bað mig um að vera þeirra fulltrúi og afhenda plöturnar fyrir þessi afrek. Bæði fyrir plötuna Hver er sinnar kæfu smiður, sem er búin að fá frábærar móttökur, og eina stóra gullplötu þar sem flest allar plöturnar sem hann hefur gert eru á,“ segir Björgvin, sem er um þessar mundir að ljúka upptökum fyrir plötuna Íslandslög 7. Laddi hafði fyrir mörgum árum fengið gullplötur fyrir eldri plötur sínar en þær voru aftur á móti hluti af búslóð hans sem brann á Laugaveginum á sínum tíma. Því var ákveðið að nota tækifærið í gærkvöldi og afhenda honum gullplöturnar aftur. „Laddi er bara gullmoli. Það er gaman að svona sýning nær svo mikilli hylli þegar leikhúsin eru svolítið önnum kafin við það að bjóða upp á einhverja hámenningu. Ég tel þetta vera hámenningu hjá Ladda og líka alþýðumenningu. Þegar hann kemur með sýninguna sína slær hann allri klassíkinni við,“ segir hann. Sýning Ladda í gærkvöldi var sú 45. í röðinni og alls hafa um 25 þúsund manns komið að sjá þennan mikla grínmeistara. „Það er verið að klappa honum ærlega á bakið,“ segir Björgvin. „Við gerðum fjórar plötur saman með HLH-flokknum og ég „pródúseraði“ þrjár sólóplötur hans. Við höfum unnið saman á tíu plötum og erum búnir þekkjast frá því í æsku í Hafnarfirðinum. Allir flottustu gæjarnir eru úr Hafnarfirði.“
Mest lesið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Lífið Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Offset skotinn við spilavíti í Flórída Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Lífið Furðubandið sem tryllti netið Lífið „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Lífið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni Ráðherrabarn komið í heiminn Lífið Fleiri fréttir Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Sjá meira