Segja góðan gang og anda í viðræðunum 18. maí 2007 16:43
Bæði Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sögðu góðan gang í viðræðum flokkanna um myndun nýrrrar ríkisstjórnar eftir fund sinn í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í dag. Auk þeirra komu Össur Skarphéðinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, að viðræðunum í dag. „Okkur miðaði vel áfram og það er góður andi í þessum viðræðum. Við höfum farið yfir nokkur mál og teljum að það séu góðar líkur til þess að við náum niðurstöðu innan ekki allt of langs tíma," sagði Ingibjörg Sólrún. Hvorki hún né Geir vildu segja til um það hvenær viðræðunum lyki en sögðust mundu funda áfram í dag, á morgun og hinn. Aðspurður sagði Geir byrjað að fara yfir málefnini en ekki byrjað að útdeila ráðuneytum. Góður andi væri í viðræðunum. Ekki bannað að spjalla saman Geir H. Haarde var spurður út í þau ummæli Jóns Sigurðssonar, formanns Framsóknarflokksins, á vef flokksins að trúnaðarbrestur hefði orðið á milli flokkanna í viðræðum síðustu daga þar sem sjálfstæðismenn hefðu einnig verið að ræða við aðra flokka. Sagðist Geir ósammála því mati Jóns að trúnaðarbrestur hefði orðið milli flokkanna. „Ég tel að samstarf okkar hafi verið afar gott mun aldrei segja neitt slæmt um það," sagði Geir og bætti við: „Þetta er opið ferli, það vita allir hvernig það gengur fyrir sig. Þó að menn séu í viðræðum eru menn ekki bundnir og það ekki bannað að spjalla saman í því ferli." Sagðist hann enn fremur ekki vilja munnhöggvast við formann Framsóknarflokksins.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Sjá meira