Lífið

Syngur fyrir Kínverja

Helga hefur tvívegis tekið þátt í Ungfrú Reykjavík og reyndi einu sinni við Idol-leit Stöðvar 2.
Helga hefur tvívegis tekið þátt í Ungfrú Reykjavík og reyndi einu sinni við Idol-leit Stöðvar 2.

Helga Dýrfinna Magnúsdóttir, 23 ára gömul Kópavogsmær, tekur þátt í Miss Tourism í ár. Keppnin fer fram í Kína og leggur Helga uppí langferðina í byrjun júlí. „Ég tók þátt í Hawaiian Tropic-keppninni og lenti þar í öðru sæti. Upphaflega stóð síðan til að ég færi til Las Vegas en þegar það datt uppfyrir stakk Ásdís Rán Gunnarsdóttir uppá því að ég tæki þátt í þessari keppni,“ útskýrir Helga sem var að vonum spennt fyrir ferðinni. „Mér líst alveg rosalega vel á þetta enda hef ég aldrei áður komið til Kína,“ bætir hún við.



Helga ætti að vera sjóuð í keppnum því hún hefur verið nokkuð iðin við kolann við að koma sér á framfæri. Hún hefur tvívegis tekið þátt í Ungfrú Reykjavík og svo prófaði hún að syngja fyrir hina harðskeyttu dómnefnd í Idol-leit Stöðvar 2. Keyrði alla leið til Akureyrar eftir að hafa misst af inntökuprófunum í höfuðborginni. „Ég hef verið að læra söng en tókst ekki að yfirbuga stressið sem fylgir því að syngja fyrir framan myndavélarnar,“ útskýrir Helga sem hefur þó ekki lagt sönginn á hilluna því hún hyggst þenja raddböndin fyrir dómefndina í Kína en þátttakendur reyna með sér í hæfileikakeppni. „Ég hef verið að bræða það með mér að syngja Somewhere Over the Rainbow,“ segir Helga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.