Mills fær 8,5 milljarða 22. júlí 2007 00:30 Hjónakornin Sir Paul McCartney og Heather Mills meðan samband þeirra blómstraði. Illúðlegar skilnaðardeilur hafa geisað milli þeirra undanfarið en nú sér fyrir endann á þeim. Heather Mills verður forrík kona. NordicPhotos/GettyImages
Heather Mills-McCartney fær eina stærstu skilnaðargreiðslu sögunnar þegar gengið verður frá skilnaði hennar og Pauls McCartney. Talið er að fyrirsætan fyrrverandi fái fast að tveimur milljörðum króna í byrjun og væna summu árlega héðan í frá. Fréttir frá Bretlandi herma að stjörnuparið fyrrverandi, Bítillinn Sir Paul McCartney og fyrirsætan Heather Mills, séu loks að ná sáttum í erfiðu skilnaðarmáli sínu. Kalt stríð hefur verið þeirra á milli síðan upp úr hjónabandinu slitnaði og harðar deilur hafa farið fram milli lögfræðinga þeirra um hversu mikið McCartney þyrfti að greiða Mills til að hún yrði ánægð. Breskir fjölmiðlar segja að skilnaðarsamningur þeirra hljóði alls upp á um 70 milljónir punda, um 8,5 milljarða íslenskra króna. Heather fái í fyrstu 1,8 milljarða króna og fast að hálfum milljarði á ári eftir það, allt þar til Beatrice dóttir þeirra nær 18 ára aldri. Á móti kemur að Heather fær engar af fasteignum Bítilsins, en hún mun hafa sótt fast að fá þær í sinn hlut. Paul McCartney mun sömuleiðis greiða fyrir allan kostnað við uppeldi dóttur þeirra. Hvorki Heather Mills né Paul McCartney hafa viljað tjá sig um skilnaðinn undanfarið svo þessar fregnir hafa ekki fengist staðfestar. Breska dagblaðið Daily Mail telur sig þó hafa traustar heimildir fyrir að málið fari ekki fyrir dómstóla og stutt sé í að gengið verði frá sáttunum. „Fljótlega get ég farið að kalla mig Heather Mills aftur,“ er haft eftir fyrirsætunni fyrrverandi en fregnir herma að hún bíði óð og uppvæg eftir að kasta McCartney-nafninu.
Mest lesið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Lífið Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Tónlist John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Gagnrýni Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Lífið Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak Menning Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Lífið „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Lífið Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið Fleiri fréttir Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Sjá meira