Innlent

Standa fyrir herferð um örugga netnotkun

MYND/Valgarður
Landssamtökin Heimili og skóli ætla í samstarfi við AUGA, góðgerðasjóð auglýsenda, að standa fyrir herferð á næstunni í prentmiðlum, útvarpi og sjónvarpi um jákvæða og örugga netnotkun. Verkefnið er í tengslum við SAFT, vakningarverkefni Heimilis og skóla um notkun barna og unglinga á Netinu og tengdum miðlum.



Fram kemur í tilkynningu frá Heimili og skóla að ætlunin sé að kynna fimm lykilorð sem hjálpa ungum og öldnum að bæta samskipti sín á Netinu. Þau eru:




1. Allt sem þú gerir á Netinu endurspeglar hver þú ert

2. Komdu fram við aðra eins og þú villt láta koma fram við þig

3. Ekki taka þátt í neinu sem þú veist ekki hvað er

4. Mundu að efni sem þú setur á Netið er öllum opið, alltaf

5. Þú berð ábyrgð á því sem þú segir og gerir á Netinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×