Innlent

Dómur mildaður yfir ofbeldismanni

Hæstiréttur Íslands.
Hæstiréttur Íslands. MYND/Einar Ólason
Hæstiréttur mildaði í dag dóm héraðsdóms Reykjavíkur yfir ofbeldismanni sem dæmdur hafði verið fyrir þrjár líkamsárásir og að hafa fíkniefni í fórum sínum. Héraðsdómur dæmdi manninn í 12 mánaða fangelsi en hæstiréttur lækkaði refsingu mannsins í 9 mánaða fangelsi.

Eftir að dómur Héraðsdóms féll í febrúar fyrir tæpu ári síðan náði maðurinn samkomulagi við eitt af fórnarlömbunum sem hann hafði ráðist á og varð sú sátt til þess að dómurinn var mildaður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×