Innlent

Tollar felldir niður á vatn og tómata

Ísland og Evrópusambandið hafa gert samkomulag sem felur í sér almenna tollalækkun á kjöti og kjötafurðum um fjörutíu prósent.

Samkomulagið felur einnig í sér gagnkvæma tollfrjálsa kvóta í viðskiptum með nokkuð magn af landbúnaðarvörum. Enginn tollur verður í viðskiptum með hesta, hreindýrakjöt, tómata, agúrkur og vatn. Ísland fellir einnig niður tolla á frosnu grænmeti

Í Stiklum, vefriti viðskiptastofu, kemur jafnframt fram að gagnkvæmir tollkvótar án allra aðflutningsgjalda verða rýmkaðir. Þannig verður hægt að flytja inn níu hundruð tonn af landbúnaðarvörum til landsins án tolla og aðflutningsgjalda. Íslendingar fá að flytja tollfrjálst til Evrópusambandsins hátt í nítjánhundruð tonn af lambakjöti og um átta hundruð tonn af skyri, smjöri og pylsum. Stefnt er að því að undirrita samkomulagið í febrúar og að það taki gildi 1. mars næstkomandi þegar ákvörðun ríkisstjórnarinnar um lækkun matvælaverðs kemur fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×